Framkvæmdir í húsnæði Mímis á Höfðabakka 9

Áætlað er að framkvæmdir standi yfir í starfsmannaálmu Mímis að Höfðabakka 9 frá miðjum ágúst fram í byrjun september.

Framkvæmdirnar takmarkast við starfsmannaálmuna og ná ekki til kennslurýma. Kennsla, námskeið og önnur starfsemi Mímis verða því áfram í fullum gangi á meðan á framkvæmdum stendur. Viðtöl hjá náms- og starfsráðgjöfum fara þó að mestu fram í fjarviðtölum á þessu tímabili.

Framkvæmdirnar eru liður í endurnýjun og uppfærslu á vinnu- og þjónustuaðstöðu hjá Mími og skapa nútímalegt og hagkvæmt vinnuumhverfi sem styður vel við starfsemi Mímis til framtíðar.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og þökkum fyrir sýndan skilning.

Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við okkur í síma 580 1800 eða með tölvupósti á [email protected].

Хефдабаккі, 9

110 Рейк'явік

580 1800

[email protected]

кт. 701202-3920

 

Години роботи: у будні дні з 8:00 до 16:00

 

Лейт.