
Framkvæmdir í húsnæði Mímis á Höfðabakka 9
Áætlað er að framkvæmdir standi yfir í starfsmannaálmu Mímis að Höfðabakka 9 frá miðjum ágúst fram í byrjun september.
Framkvæmdirnar takmarkast við starfsmannaálmuna og ná ekki til kennslurýma. Kennsla, námskeið og önnur starfsemi Mímis verða því áfram í fullum gangi á meðan á framkvæmdum stendur. Viðtöl hjá náms- og starfsráðgjöfum fara þó að mestu fram í fjarviðtölum á þessu tímabili.
Framkvæmdirnar eru liður í endurnýjun og uppfærslu á vinnu- og þjónustuaðstöðu hjá Mími og skapa nútímalegt og hagkvæmt vinnuumhverfi sem styður vel við starfsemi Mímis til framtíðar.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og þökkum fyrir sýndan skilning.
Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við okkur í síma 580 1800 eða með tölvupósti á [email protected].








