Útskrift úr Fagnámskeiði 2 fyrir starfsfólk leikskóla

Glæsilegur hópur útskrifaðist 24.júní sl. úr Fagnámskeiði 2 fyrir starfsfólk leikskóla hjá Mími. Hér fylgja einnig myndir af frábærum verkefnum sem nemendur unnu í myndlist á námskeiðinu en þau bera vitni um mikla sköpunargleði og metnað þeirra.

Á námskeiðinu fengu þátttakendur fjölbreytta og mikilvæga innsýn í starf á leikskólum, meðal annars hvað varðar námsskrá leikskóla, þroska leikskólabarna, íslensku fyrir tvítyngd börn og skapandi listastarf með börnum. Jafnframt var lögð rík áhersla á líkamsbeitingu og vinnuaðstöðu, slysavarnir og heilsueflingu – þætti sem skipta sköpum í daglegu starfi með ungum börnum.

Nemendur lögðu sig fram af alúð og stóðu sig afar vel. Það var sannarlega ánægjulegt að hafa þennan áhugasama og jákvæða hóp í húsinu.

Við óskum öllum útskriftarnemum til hamingju með áfangann og þökkum kærlega fyrir góða samveru.

 

Höfðabakki 9

110 Reykjavík

580 1800

[email protected]

kt. 701202-3920

 

Opnunartími

Sumartími: Virkir dagar frá kl. 8.00-15.30

Leit