
Nýtt námskeið hjá Mími – Skóla-og frístundasmiðja og íslenska 3
Mánudaginn 31. ágúst hófst nýtt námskeið hjá Mími, Skóla- og frístundasmiðja og íslenska 3. Námskeiðið sameinar faglegt nám fyrir störf í skóla- og frístundastarfi og markvisst íslenskunám sem styður þátttakendur bæði í starfi og daglegu lífi.
Mikill áhugi hefur verið á sambærilegum námsleiðum hjá Mími á undanförnum árum. Umönnunarsmiðja og Leikskólasmiðja hafa reynst afar vinsælar og veitt fjölmörgum þátttakendum tækifæri til að efla þekkingu sína og færni til starfa á íslenskum vinnumarkaði.
Við erum því mjög ánægð með að bæta Skóla- og frístundasmiðjunni við fjölbreytta flóru námskeiða hjá Mími. Námskeiðið er mikilvægt framlag til að mæta þörfum fólks sem vill styrkja stöðu sína á vinnumarkaði og efla íslenskukunnáttu sína samhliða faglegri þróun.
Við bjóðum þátttakendur hjartanlega velkomna og óskum þeim velfarnaðar í náminu.







