Staðnám
Vorönn 2026

Íslenska talþjálfun 2-3 (A1.2-A2.1)

Viltu eiga samskipti á íslensku?

Á námskeiðinu nærð þú betri tökum á að tala og skilja tungumálið. Með markvissum æfingum og þjálfun byggir þú upp sjálfstraust til að tjá þig við alls konar hversdagslegar aðstæður.

Næst á haustönn 2026
Höfðabakki 9
20 klst.
Verð36.800 kr.

Námskeið framundan

Hvernig er að læra í Mími?

  • Afslappað og hlýlegt andrúmsloft sem býður öll velkomin!
  • Vingjarnlegir og faglegir kennarar.
  • Árangursríkar og skapandi kennsluaðferðir.
  • Fjölbreytt kennsluefni fyrir öll stig.
  • Fjölbreytt úrval námskeiða.

Námskeiðið Íslenska 2-3 talþjálfun er sérsniðið fyrir þig sem vilt öðlast meira öryggi í að tala íslensku. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þjálfa flæði í tali, skýran framburð og hagnýt samskipti í daglegu lífi.

Íslenska 2-3 talþjálfun er framhaldsnámskeið á stigi A1.2-A2.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum . Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda tryggð svo að íslenskunámið verði árangursríkt og skemmtilegt.

  • Við leggjum áherslu á talþjálfun í raunverulegum aðstæðum og þú æfir samtöl og frásagnir með áhugaverðum æfingum.
  • Réttur framburður er æfður út frá þjálfun í skilningi og flæði í samskiptum.
  • Þú byggir upp aukið sjálfstraust til að nota íslensku í öllum mögulegum aðstæðum.
  • Málfræði er skoðuð og dýpkuð í tengslum við talæfingar og fyrri kunnáttu nemenda.**
  • Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.

Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku.

Undanfari er Íslenska 1 og 2 (80 klukkustundir) eða sambærileg kunnátta. Námskeiðið er kennt á íslensku.

Þátttakendur verða að geta tjáð sig á einfaldan hátt á íslensku og kunna grunnatriði í málinu. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.

  • Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.
  • Til þess að útskrifast og fá skírteini er nauðsynlegt að ná 75% mætingu á námskeiðinu.
  •  Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.
  • Íslenskunámskeið í Mími eru byggð á námskrá í íslensku fyrir útlendinga sem gefin er út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].

Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]

Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.

Þarftu aðstoð?

Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.

Netfang [email protected]

Sími 580 1800

Ráðgjöf hjá Mími

Leit