Ertu farin/n að huga að starfslokum?
Hjá Mími er boðið upp á hagnýtt námskeið fyrir fólk á þessum tímamótum í lífi sínu.
Það er stórt skref að hætta á vinnumarkaði og því fylgja miklar breytingar á lífi fólks sem þarf að undirbúa vel.
En með góðum undirbúningi verða breytingarnar og ný hlutverk í lífinu jákvæðar og áreynslulitlar.
Á námskeiðinu fjalla sérfræðingar til að mynda um sjúkratryggingar, lífeyrisréttindi, réttindi hjá stéttarfélaginu og mikilvægi þess að viðhalda góðri heilsu.
Einnig verður fjallað um hvað er í boði í félagsstarfi og fræðslu fyrir fólk sem er komið á aldur.
Frekari upplýsingar um starfslokanámskeið: [email protected]
Unsure which course is best for you? Need to assess your experience and skills? At Mími, we offer personal guidance and help you find the right path in your studies or career.
Email address [email protected]
Telephone 580 1800