Fjarnám
Vorönn 2026

Íslenska

Íslenska 3 fjarnám (A2.1)

Á námskeiðinu heldur þú áfram að stíga örugg skref í að læra íslensku.

Þú bætir við þig fjölbreyttum orðaforða og eflir sjálfstraust þitt til að nota tungumálið. Við leggjum áherslu á skilning og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi.

Fjarnám
40 klst.
Verð59.500 kr.

Námskeið framundan

Heiti Dagar Dags. Tími Staðsetning Verð
Icelandic flag
Íslenska 3 fjarnám
Þri og fim 7. Apr 2026 - 18. Jun 2026 19:40 - 21:50 Fjarnám 59.500 kr. Skrá mig
Icelandic flag
Íslenska 3 fjarnám
Laugardagar 11. Apr 2026 - 13. Jun 2026 09:00 - 13:30 Fjarnám 59.500 kr. Skrá mig
Icelandic flag
Íslenska 3 fjarnám
Þri og fim 13. Apr 2026 - 24. Jun 2026 07:00 - 09:10 Fjarnám 59.500 kr. Skrá mig
Icelandic flag
Íslenska
Mán og mið 8. Apr 2026 - 22. Jun 2026 17:10 - 19:20 Fjarnám 59.500 kr. Skrá mig

Hvernig er að læra í Mími?

  • Afslappað andrúmsloft sem býður öll velkomin.
  • Vingjarnlegir og faglegir kennarar.
  • Árangursríkar og skapandi kennsluaðferðir.
  • Fjölbreytt kennsluefni fyrir öll stig.
  • Fjölbreytt úrval námskeiða.

Námskeiðið Íslenska 3 er sérsniðið fyrir þig sem ert að halda áfram að læra íslensku. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja upp fjölbreyttan orðaforða daglegs máls. Þú þjálfar alla þætti tungumálsins, það er skilning, lestur, ritun og talþjálfun með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.

Íslenska 3 er framhaldsnámskeið á stigi A2.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Námsefnið Íslenska fyrir alla 3 er notað auk leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi.

Þú heldur áfram að læra íslensku sem nýtist í daglegu lífi og sem tengist samfélagsmálum og þörfum þínum.

Þú lærir um og notar ýmsar aðferðir sem auka sjálfstraust þitt í að tala íslensku.

Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir setningar bæði í samtölum og frásögn.

Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.

Málfræðin er áfram kynnt og þjálfuð á einfaldan og hagnýtan hátt í tengslum við námsefnið og það sem þú hefur þegar lært.*

Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.

Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku.

Undanfari er Íslenska 1 og 2 (80 klukkustundir) eða sambærileg þekking.

Á þriðja stigi er íslenska notuð í kennslu. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.

  • Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.
  • Til þess að útskrifast og fá skírteini er nauðsynlegt að ná 75% mætingu á námskeiðinu.
  • Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.
  • Íslenskunámskeið í Mími eru byggð á námskrá í íslensku fyrir útlendinga sem gefin er út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].

Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]

Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.

Þarftu aðstoð?

Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.

Netfang [email protected]

Sími 580 1800

Ráðgjöf hjá Mími

#!trpst#trp-gettext data-trpgettextoriginal=2#!trpen#Leit#!trpst#/trp-gettext#!trpen#