Viltu eiga samskipti á íslensku?
Á námskeiðinu nærð þú betri tökum á að tala og skilja tungumálið. Með markvissum æfingum og þjálfun byggir þú upp sjálfstraust til að tjá þig við alls konar hversdagslegar aðstæður.
Námskeiðið Íslenska 2-3 talþjálfun er sérsniðið fyrir þig sem vilt öðlast meira öryggi í að tala íslensku. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þjálfa flæði í tali, skýran framburð og hagnýt samskipti í daglegu lífi.
Íslenska 2-3 talþjálfun er framhaldsnámskeið á stigi A1.2-A2.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum . Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda tryggð svo að íslenskunámið verði árangursríkt og skemmtilegt.
Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku.
Undanfari er Íslenska 1 og 2 (80 klukkustundir) eða sambærileg kunnátta. Námskeiðið er kennt á íslensku.
Þátttakendur verða að geta tjáð sig á einfaldan hátt á íslensku og kunna grunnatriði í málinu. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.
Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].
Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]
Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang [email protected]
Sími 580 1800
Höfðabakki 9
110 Reykjavík
kt. 701202-3920
Opnunartími
Virkir dagar frá kl. 8.00-16.00