
Nowy kurs w Mímir: Zdrowie finansowe – droga do lepszej jakości życia
Í haust fer af stað nýtt námskeið hjá Mími fyrir öll sem vilja ná betri tökum á eigin fjármálum, byggja upp fjárhagslegt öryggi og leggja grunn að sterkari framtíð.
Á námskeiðinu Fjárhagsleg heilsa – leið að betri lífsgæðum fá þátttakendur hagnýt verkfæri til að öðlast betri yfirsýn yfir fjármálin, byggja upp sparnað og taka upplýstar ákvarðanir. Markmiðið er að efla fjárhagslega heilsu og skapa aukið öryggi og betri lífsgæði til framtíðar.
Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:
- sparnað og uppbyggingu varasjóðs
- gerð einfaldra og skilvirkra fjármálaáætlana
- lán og tryggingar
- lífeyrissparnað og framtíðarskipulag
- íbúðakaup og rekstur heimilis
- leiðir til að setja raunhæf fjárhagsleg markmið og ná þeim
Reyndur kennari með áratuga þekkingu
Kennari námskeiðsins er Þóra Valný Yngvadóttir, fjármálaráðgjafi með yfir 25 ára reynslu af fjármálamarkaði. Hún er viðskiptafræðingur frá Oxford Brookes University, með löggildingu í fjármálaráðgjöf og verðbréfaviðskiptum, auk þess að vera vottaður markþjálfi.
Þóra hefur jafnframt haldið fjölmörg námskeið og fyrirlestra um fjármál einstaklinga um land allt og miðlað þekkingu sinni á hagnýtan og aðgengilegan hátt.
Hagnýtar upplýsingar
- Staðsetning: Mímir, Höfðabakka 9 – staðnám
- Dagsetningar: 21. september til 5. október
- Dagar: Mánudagar og miðvikudagar, 2 klst. í senn – alls 5 skipti
- Á ensku: kl. 10:00–12:00
- Á íslensku: kl. 13:00–15:00
- Verð: 49 900 kr.
Þátttakendur eru hvattir til að kanna rétt sinn til námsstyrks hjá sínu stéttarfélagi vegna námskeiðsgjalds.
Taktu skrefið í átt að auknu fjárhagslegu öryggi og betri lífsgæðum.
Nánari upplýsingar og skráning:








