Certificado de Conclusão do Curso de Desenvolvimento Profissional 2 para Profissionais da Primeira Infância

Nemendur á Fagnámskeiði 2 fyrir starfsfólk leikskóla útskrifuðust síðastliðin miðvikudag við hátíðlega athöfn. Hópurinn hefur sýnt mikinn áhuga á náminu og var ánægjulegt að fylgjast með framförum þeirra á námskeiðinu.

Á námskeiðinu fengu þátttakendur tækifæri til að efla faglega þekkingu sína og hæfni í starfi með fjölbreyttum verkefnum og umræðum. Samheldni hópsins var góð og þátttakendur studdu vel hver við annan í gegnum námið.

Kennarar námskeiðsins voru ánægðir með góðan anda og vinnusemi hópsins. Það var sannarlega ánægjulegt að hafa svona áhugasama og duglega nemendur í húsinu.

Við óskum útskriftarhópnum innilega til hamingju með áfangann og vonumst til að sjá sem flest þeirra aftur í frekara námi hjá Mími.

Leit