Mímir leitar að náms- og starfsráðgjafa/verkefnastjóra

NÁMS – OG
STARFSRÁÐGJAFI/VERKEFNASTJÓRI

Mímir–símenntun leitar að öflugum náms- og starfsráðgjafa/verkefnastjóra í tímabundið starf. Leitað er að sjálfstæðum og lausnamiðuðum aðila sem hefur brennandi áhuga á sviði fullorðins- og framhaldsfræðslu auk þess sem reynsla af vinnutengdri ráðgjöf er kostur.

Sarfssvið:

  • Veita fullorðnu fólki ráðgjöf í formi náms- og starfsráðgjafar.
  • Kennsla tengd náms- og starfsráðgjöf, m.a. á vinnustöðum.
  • Framkvæmd raunfærnimats, námskeiða/ námsbrauta, m.a. í samstarfi við vinnustaði.
  • Hæfnigreining starfa og greining fræðsluþarfa á vinnustöðum.
  • Atvinnutengd ráðgjöf og þjónusta á vinnustöðum, m.a. vegna breytinga á vinnumarkaði í tengslum við fjórðu iðnbyltinguna.
  • Ýmiss konar kynningar og þróun virkniúrræða í samstarfi við atvinnulífið.
  • Umsjón með og/eða þátttaka í innlendum og erlendum þróunarverkefnum.
  • Ýmis tilfallandi verkefni.

 

Hæfnikröfur:

  • Leyfi mennta- og menningarmálaráðuneytisins til að kalla sig náms- og starfsráðgjafa.
  • Reynsla af náms- og starfsráðgjöf er kostur.
  • Þekking og reynsla af atvinnutengdri ráðgjöf og samstarfi við vinnustaði er kostur.
  • Þekking á raunfærnimati er kostur.
  • Þekking á framhaldsfræðslukerfinu og/eða starfi símenntunarmiðstöðva er kostur.
  • Miklir hæfileikar til samskipta og samstarfs.
  • Geta til að sýna frumkvæði, útsjónarsemi og hæfni til að vinna sjálfstætt.
  • Gott vald á íslensku og ágæt færni í ensku.
  • Gott tölvulæsi.

 

Umsóknir:

Ferilskrá og kynningarbréf sendist til [email protected] fyrir 1. febrúar 2021 Upplýsingar veitir Sigríður Droplaug Jónsdóttir, sviðsstjóri, í síma 580-1800 eða í tölvupósti [email protected]

Leit