
Ráðgjöf Mímis endurspeglar fjölbreytileika samfélagsins
Árið 2024 tóku náms- og starfsráðgjafar Mímis símenntunar samtals 1.737 viðtöl. Þótt heildarfjöldinn hafi dregist lítillega saman frá fyrra ári hafa orðið verulegar breytingar á hópnum sem leitar ráðgjafar. Áberandi fjölgun var meðal þeirra sem leita ráðgjafar hjá Mími og hafa erlent ríkisfang.
Viðtöl við einstaklinga með íslenskt ríkisfang voru hátt í þúsund og á sama tíma fjölgaði viðtölum við einstaklinga með erlent ríkisfang um 49,2%. Þessi þróun endurspeglar aukinn fjölbreytileika meðal ráðþega og undirstrikar mikilvægi þess að veita faglega þjónustu sem tekur mið af ólíkum bakgrunni, tungumálakunnáttu og markmiðum markhóps framhaldsfræðslunnar.
Þörfin fyrir markvissa og aðgengilega ráðgjöf fyrir fólk af erlendum uppruna er nauðsynleg. Fagleg ráðgjöf er mikilvæg fyrir þau sem setjast að á Íslandi, m.a. til að fá upplýsingar um tækifæri til að læra íslensku, mögulegan starfsvettvang og til að finna sínar leiðir í nýju samfélagi.
Náms- og starfsráðgjafar Mímis gegna þar lykilhlutverki með því að bjóða upp á aðgengilega og faglega þjónustu sem styður við inngildingu, þátttöku og tækifæri til að vaxa.
Náms- og starfsráðgjafar Mímis veita einstaklingsmiðaða ráðgjöf, þar sem ráðþegar fá aðstoð við að greina stöðu sína, skoða möguleika til náms og starfa og móta næstu skref. Viðtöl við markhóp framhaldsfræðslunnar eru einstaklingum að kostnaðarlausu. Ráðgjöfin er fyrst og fremst ætluð fólki með stutta formlega skólagöngu og er fjármögnuð af fræðslusjóði sem er stýrt af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.








