Những câu chuyện tươi sáng từ Chương trình Đào tạo Liên tục Mímir dành cho nhân viên chăm sóc trẻ mầm non và nhân viên hỗ trợ

Áhuginn á leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú hjá Mími fer vaxandi enda hagnýtt og uppbyggilegt nám sem nýtist beint í starfi með börnum. Reynslusögur nemenda sýna vel hversu mikil áhrif námið getur haft – bæði á færni í starfi og á sjálfstraust.

Brynja Björg er einn þeirra nemenda sem ákvað að láta slag standa, eftir hvatningu frá vini, og skrá sig í námið. Hún byrjaði á því að fara í Đánh giá kỹ năng thực hành hjá Mími en með því gat hún stytt námstímann verulega. Raunfærni er sú samanlagða færni sem einstaklingur hefur aflað sér í námi, starfi og daglegu lífi. Raunfærnimat felst í því að meta og staðfesta þessa færni og er gott tæki til starfsþróunar og sjálfseflingar.

„Námið hefur verið mjög skemmtilegt og lærdómsríkt og kennararnir frábærir,“ segir Brynja Björg.

Það sem kom henni mest á óvart var hversu vel henni gekk að læra eftir langt hlé frá skóla, en hún hafði ekki setið á skólabekk í 22 ár.

„Ég uppgötvaði að ég hef mikinn metnað í námi og fékk trú á sjálfri mér.“

Brynja segir námið hafa haft jákvæð áhrif á sjálfstraust sitt í starfi.

„Ég fékk fjölbreytt og skemmtileg verkfæri, bæði frá kennurum og samnemendum, sem ég nota á hverjum degi í vinnunni“.

Hún er jákvæð gagnvart frekara námi í framtíðinni og hvetur aðra eindregið til að taka skrefið:

„Bara go for it – það er aldrei of seint að mennta sig.“

Elín Erna tekur í sama streng og lýsir þeirri ákvörðun að hefja námið sem afar góðri og mikilvægri fyrir sig. Hún segir námið hafa verið skemmtilegt, vel skipulagt og í sterkum tengslum við raunveruleg störf.

„Það sem kom mér mest á óvart var hversu fjölbreytt og hagnýtt námið var. Ég gat strax beitt því sem ég lærði í starfi með börnum og það gerði námið bæði lifandi og gagnlegt.“

Að hennar sögn hefur námið dýpkað skilning hennar á þörfum barna og hvernig best sé að styðja við jafnt félagslegan og tilfinningalegan þroska þeirra. Hún finnur einnig fyrir auknu öryggi í samskiptum við börn, foreldra og samstarfsfólk.

„Ég hef orðið betri í að lesa í hegðun barna og bregðast við á uppbyggilegan hátt, auk þess sem ég styð við félagsfærni og sjálfstæði þeirra á markvissari hátt.“

Elín mælir eindregið með náminu og telur það styrkja fólk bæði faglega og persónulega.

„Þetta er gefandi nám sem opnar ný tækifæri og eflir mann í starfi með börnum.“

Reynslusögur þeirra Brynju og Elínar endurspegla vel það sem margir nemendur upplifa: að námið veiti raunhæf verkfæri, auki faglega færni og byggi upp sjálfstraust sem skiptir sköpum í starfi með börnum.

Skráning í leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú er í fullum gangi fyrir haustið – áhugasöm eru hvött til að kynna sér námið hér og tryggja sér pláss.

Leit