Gæðastefnur og áætlanir

Gæði í fyrirrúmi

Hjá Mími-símenntun hefur frá upphafi verið lögð áhersla á gæði í öllu starfi.

Við erum viðurkenndur fræðsluaðili af mennta- og barnamálaráðuneytinu samkvæmt lögum um framhaldsfræðslu nr. 27/2010, sem staðfestir að starfsemin uppfyllir skýrar og faglegar kröfur um skipulag, fræðsluefni og þjónustu.

Gæðavottanir og viðurkenningar

Þjónusta Mímis á sviði fræðslu, náms- og starfsráðgjafar og raunfærnimats hefur hlotið EQM+ gæðavottun (European Quality Mark) frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Vottunin er staðfesting á faglegum vinnubrögðum, umbótum í öndvegi og þjónustu sem byggir á þörfum fólks og atvinnulífs.

Mímir hefur einnig hlotið viðurkenningu Creditinfo sem framúrskarandi fyrirtæki og verið valið fyrirmyndafyrirtæki í rekstri af Viðskiptablaðinu og Keldunni mörg ár í röð. Þessar viðurkenningar endurspegla traustan rekstur, góða starfshætti og stöðugleika.

 

 

Samstarf og sameiginleg markmið

Mímir er aðili að Símennt, samtökum ellefu fræðslu- og símenntunarmiðstöðva um land allt. Markmið samtakanna er að efla símenntun og framhaldsfræðslu á Íslandi. Það á jafnt við um að styðja einstaklinga í að byggja upp sína hæfni og með því að auka vitund atvinnulífsins um mikilvægi símenntunar í síbreytilegu starfsumhverfi.

Mímir er einnig aðili að Leikn, samtökum fræðsluaðila á Íslandi sem vinna saman að því að efla og styrkja fullorðinsfræðslu og símenntun um allt land. Samtökin voru stofnuð árið 2005 og eru í dag regnhlífasamtök 19 fræðsluaðila sem starfa á öllum landssvæðum.

Útgefið efni um gæðamál

Útgefið efni um gæðamál

#!trpst#trp-gettext data-trpgettextoriginal=2#!trpen#Leit#!trpst#/trp-gettext#!trpen#