Íslenska í stuttu máli er hagnýtt örnámskeið (6 klst.) fyrir þau sem vilja byrja að læra íslensku. Þú lærir stafrófið, algeng orð og einfaldar setningar sem nýtast í samskiptum, jafnt í vinnu og daglegu lífi.
Þú færð innsýn í algengar venjur í íslensku samfélagi og upplýsingar um leiðir til að halda áfram að læra íslensku.
• Afslappað andrúmsloft sem býður öll velkomin.
• Vingjarnlegir og faglegir kennarar.
• Árangursríkar og skapandi kennsluaðferðir.
• Fjölbreytt kennsluefni fyrir öll stig.
• Fjölbreytt úrval námskeiða.
Námskeiðið er örnámskeið í íslensku á byrjendastigi. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að kynna algeng orð og þjálfa einfaldar setningar sem nýtast í samskiptum, bæði á vinnustöðum og í daglegu lífi.
Einnig er veitt innsýn í nokkrar venjur og siði í íslensku samfélagi.
Í lok námskeiðsins fá nemendur upplýsingar um leiðir til að halda áfram að læra íslensku.
Íslenska í stuttu máli er byrjendanámskeið á stigi A1.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Það er kennt tvisvar sinnum, þrjár klst. í senn, alls 6 klst.
Á námskeiðinu er notað fjölbreytt efni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku.
Læra stafrófið og framburð
Læra algeng orð og kveðjur
Læra einfaldar setningar sem nýtast í starfi og daglegu lífi
Innsýn í nokkrar venjur og siði í íslensku samfélagi.
Fá upplýsingar um leiðir til að halda áfram að læra íslensku
Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku. Enska er notuð sem millimál í kennslunni ef þörf krefur. Þátttakendur þurfa að kunna að lesa og skrifa latneskt letur og skilja smávegis í ensku.
Til þess að útskrifast og fá skírteini er nauðsynlegt að ná 75% mætingu á námskeiðinu.
Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.
Íslenskunámskeið í Mími eru byggð á námskrá í íslensku fyrir útlendinga sem gefin er út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða sama stig oftar en einu sinni.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang [email protected]
Sími 580 1800
Höfðabakki 9
110 Reykjavík
kt. 701202-3920
Opnunartími
Virkir dagar frá kl. 8.00-16.00