On-site and online
Spring term 2026

26 August 2026 - 3 May 2028

Early Years Educator and Support Worker Bridge

Vinnur þú á leikskóla eða í grunnskóla?

Viltu styrkja þig faglega og fá formlega menntun?

Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú er sérsniðið nám fyrir starfsfólk í leik- og grunnskólum sem vill vaxa í starfi og útskrifast sem leikskólaliði og stuðningsfulltrúi.

Þetta er leið fyrir þig til að efla þig í starfi og skapa ný tækifæri í fjölbreyttu starfsumhverfi með börnum.   

26 August 2026 - 3 May 2028

Kennt einn laugardag í mánuði á milli 9:00 og 13:30 og nokkur skipti á virkum dögum frá 17:00-21:00.
Höfðabakki 9 and distance learning
410 hours (four terms)
Price201.900 kr.

What is it like to study at Mími?

  • A friendly, relaxed and encouraging learning environment
  • Professional and experienced teachers
  • Effective and lively teaching methods
  • A diverse range of courses to suit everyone
  • Support and care

Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú er sérsniðin námsbraut fyrir þau sem starfa með börnum á leik- og grunnskólastigi.

Námið er hagnýtt, tengt skólastarfi og kennt með það að leiðarljósi að styrkja þig í núverandi starfi eða framtíðarhlutverki innan skólakerfisins.

Í náminu er lögð áhersla á að styrkja fagvitund þína og sjálfstraust, auk þess sem þú öðlast þekkingu og skilning á:

  • Þroska og þörfum barna: Lærðu meira um það sem þroskar og mótar börn.
  • Mikilvægi leiks í námi og þroska: Fáðu þekkingu á því hvernig leikur er uppbyggileg leið til náms og þroska.
  • Áhrifaríkum samskiptum og samstarfi: Þjálfaðu fagleg, skýr og árangursrík samskipti og samvinnu.
  • Sterkari fagvitund og auknu sjálfstrausti: Byggðu upp sjálfstraust í þínu starfi.

Að námi loknu útskrifast þú sem leikskólaliði og stuðningsfulltrúi með viðurkennda menntun sem nýtist beint í starfi og styrkir stöðu þína til framtíðar.

Námið fer fram í blönduðu fjar- og staðnámi með stuðningi reyndra kennara sem auðveldar þér að samræma námið fjölskyldulífi og starfi. Einn áfangi er kenndur í einu sem gerir námið sveigjanlegt og aðgengilegt.

Þú tekur virkan þátt í umræðum og verkefnavinnu og færð reglulega endurgjöf sem styður við þig jafnt persónulega sem faglega í náminu.

1.önn
Upplýsingatækni UTN2A05
Uppeldisfræði UPP2A05
Kennslustofan og nemandinn NÁMT2KN05

2.önn
Uppeldisfræði UPP3A05
Þroskasálfræði SÁL3A05
Hegðun og atferlismótun HOA2A05
Gagnrýnin hugsun og siðfræði GHS2A05
Skyndihjálp SKY2A01

3.önn
Fatlanir FTL1A05
Barnabókmenntir ÍSL2A05
Samskipti og samstarf SAS1A05

4.önn
Leikur sem náms- og þroskaleið LEN2A05
Skapandi starf SPS1A05
Þroski og hreyfing ÞRO2A05

Námið er fyrir þau sem starfa í  leik- og grunnskólum.

Námið er ætlað einstaklingum sem:

  • Hafa náð 22 ára aldri
  • Eru með a.m.k. þriggja ára starfsreynslu á leik- eða grunnskóla
  • Hafa lokið 140 klst. starfstengdum námskeiðum

  • Námsmat byggist á mætingu og virkni í tímum sem hvetur til virkrar þátttöku.
  • Til að ljúka námsbrautinni og útskrifast er nauðsynlegt að ná 80% mætingu.
  • Námið er kennt samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.
  • Námskeiðshald: Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir því að námskeið verði haldið.     

Competency assessment: Ef þú býrð yfir reynslu úr starfi í leik- eða grunnskóla getur þú mögulega fengið hluta námsins metinn í gegnum raunfærnimat. Ef þú vilt kanna þann möguleika skaltu hafa samband við náms- og starfsráðgjafa hjá Mími. Við erum hér til að styðja við þig á námsferlinum.

Við hlökkum til að vinna mér þér til að ná markmiðum þínum og eflast í starfi með börnum.

Do you need help?

Unsure which course is best for you? Need to assess your experience and skills? At Mími, we offer personal guidance and help you find the right path in your studies or career.

Email address [email protected]

Telephone 580 1800

Advice at Mímir

Leit