Tæknibreytingar á liðinni önn

Frá upphafi annar hefur mikið gengið á í tæknimálum Mímis. Í takt við breytingar á ásýnd og aðstöðu fyrirtækisins hefur Mímir fjárfest í heildstæðri endurnýjun á tæknilegum innviðum, með það að markmiði að bæta aðstöðu fyrir starfsfólk, kennara og nemendur.

Búnaður í fundarherbergi var tekinn í gegn og fjarfundarbúnaður af nýjustu gerð var tekinn í notkun. Þetta mun stuðla að eflingu samstarfs við erlendar stofnanir og skóla.

Uppfærslan á tölvubúnaði fyrirtækisins nær þó ekki aðeins til innra starfs Mímis heldur einnig til kennslustarfs. Nýjar tölvur hafa verið teknar í notkun á kennarastofu, í kennslustofum og til afnota fyrir nemendur.

Samhliða uppfærslu á tölvum í kennslustofum hefur orðið allsherjar endurnýjun á kennslubúnaði. Nýir kennsluskjáir hafa verið settir upp í öllum stofum, ásamt fjarfundarbúnaði sem styður við sveigjanlegri kennsluhætti.

Mímir hefur því tekið stór skref á þessari önn í að auka getu sína til að mæta þörfum fólks fyrir sveigjanlegra nám sem er ekki eingöngu bundið við staðnám.

Mímir hefur einnig haldið áfram þeirri vegferð að lágmarka pappírsnotkun. Upplýsingaskjáir hafa verið settir upp fyrir utan allar kennslustofur og munu þeir draga verulega úr þörfinni á að prenta út stundatöflur þar sem þær verða færðar alfarið á stafrænt form.

Að lokum er vert að nefna tvennt. Nýr alhliðaupplýsingaskjár í móttöku mun verða tekinn í notkun á næstu önn. Hann verður notaður til að veita nemendum upplýsingar um tíma og staðsetningu námskeiða hvers dags. Einnig eru áform um að setja upp kennsluskjá í Esju sem verður til boða fyrir nemendur við verkefnavinnu.

Það er því óhætt að segja að Mímir hafi tekið stór skref fram á við á líðandi önn í að færa fyrirtækið betur inn í nútímann og skapa sterkari tæknigrunn fyrir kennslu, nám og daglegt starf til framtíðar.

Höfðabakki, 9

110 Reikiavik

580 1800

[email protected]

kt. 701202-3920

 

Horario de apertura

Horario de verano: de lunes a viernes, de 8:00 a 15:30

Leit