„Þessi útskrift markar ekki endalok heldur nýtt upphaf“

„Í dag stöndum við hér stolt eftir annasama og krefjandi önn. Fyrir mig persónulega hefur þessi ferð verið bæði lærdómsrík og krefjandi. Að taka 60 einingar á einni önn er ekki verkefni sem maður klárar einn,“ sagði Þórir Björgvinsson, útskriftarnemandi úr Menntastoðum en hann hélt ræðu fyrir hönd nemenda við útskrift þeirra 10. júní síðastliðinn.

Þessi orð fanga svo vel anda námsins og þann árangur sem það skilar en Menntastoðir Mímis leggja áherslu á einstaklingsmiðað nám, þar sem stuðningur kennara, ráðgjafa og samnemenda spilar lykilhlutverk. Nemendur koma úr ólíkum áttum, með mismunandi reynslu og bakgrunn, en eiga það sameiginlegt að vilja bæta stöðu sína og opna ný tækifæri.

Í ræðu sinni lagði Þórir áherslu á að árangurinn væri ekki aðeins einstaklingsbundinn heldur byggðist á öflugu stuðningsneti innan skólans. Hann þakkaði kennurum sérstaklega fyrir að halda nemendum við efnið, jafnvel þegar álagið varð mikið:

„Þið hafið ekki aðeins kennt okkur námsefnið heldur líka hjálpað okkur að halda fókus þegar verkefnin hlóðust upp og álagið varð mikið. Þolinmæði ykkar, hvatning og trú á okkur skiptu miklu máli.“

Stuðningur ráðgjafa og stjórnenda var einnig nefndur sem lykilþáttur í námsupplifuninni. Að mati Þóris skapa Menntastoðir umhverfi þar sem nemendur fá raunverulegt tækifæri til að vaxa:

„Þið hafið skapað umhverfi þar sem nemendur fá tækifæri til að vaxa, læra og ná markmiðum sínum. Stuðningurinn sem við höfum fundið fyrir á þessari leið hefur verið ómetanlegur.“

En það sem stóð hvað mest upp úr, að sögn Þóris, var samheldnin meðal nemenda. Þrátt fyrir ólíkan bakgrunn myndaðist sterk heild þar sem allir studdu hvern annan:

„Við komum hingað úr ólíkum áttum. Samt myndaðist hér einstök samheldni. Við peppuðum hvert annað áfram þegar orkan var að klárast.“

Þessi samvinna og samkennd er einmitt það sem gerir staðnám Menntastoða Mímis sérstakt að mati margra. Nemendur öðlast ekki aðeins bóklega þekkingu heldur þjálfa að auki félagslega færni og eignast tengslanet sem getur skipt sköpum í framtíðinni. Að lokum undirstrikaði Þórir að útskriftin væri ekki endapunktur heldur upphaf nýrrar vegferðar:

„Þessi útskrift markar ekki endalok heldur nýtt upphaf. Við tökum með okkur þekkinguna, reynsluna og vináttuna.“

Menntastoðir hefur reynst mörgum stökkpallur inn í störf eða frekara nám auk þess að styrkja sjálfstraust og færni þátttakenda. Staðnám Menntastoða Mímis sýnir hvernig vel skipulagt nám, sterkur stuðningur og samheldinn hópur geta skapað raunveruleg tækifæri fyrir fólk til að breyta lífi sínu. Fyrir marga er það fyrsta skrefið í átt að frekara námi, nýjum starfsferli og auknum lífsgæðum.

Hljómar þetta eins og eitthvað fyrir þig? Sæktu um nám tại đây eða bókaðu ráðgjöf hjá náms-og starfsráðgjafa tại đây.

Số 9, đường Höfðabakki

110 Reykjavik

580 1800

[email protected]

kt. 701202-3920

 

Giờ mở cửa

Giờ mở cửa mùa hè: Các ngày trong tuần từ 8:00 đến 15:30

Leit