
Mímis's experience of Icelandic as a second language presented at an international conference in Lithuania
María Stefanía Stefánsdóttir, fagstjóri íslenskunáms og erlends samstarfs hjá Mími-símenntun, tók nýverið þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um tungumálanám og inngildingu innflytjenda sem haldin var í Vilníus í Litháen.
Ráðstefnan bar yfirskriftina Integration through Language: Challenges and Opportunities for the Inclusion of Third-Country Nationals in Society og var skipulögð af Vytautas Magnus University Education Academy. Þar komu saman sérfræðingar, kennarar, rannsakendur og stjórnendur frá nokkrum Evrópulöndum til að ræða hlutverk tungumála í inngildingu og þátttöku innflytjenda í samfélaginu.
Í fyrirlestri sínum fjallaði María Stefanía um stöðu íslensku sem annars máls á Íslandi, þróun innflytjendamála og hlutverk fullorðinsfræðslu í að styðja við tungumálanám og samfélagsþátttöku.
Sérstök áhersla var lögð á starfsemi Mímis á sviði íslenskunáms, íslenskukennslu á vinnustöðum, sveigjanlegra námsleiða og samstarfs við atvinnulífið. Einnig var fjallað um hvernig íslenskt samfélag hefur breyst á undanförnum árum, aukna eftirspurn eftir íslenskunámi og þær áskoranir sem felast í samræmingu, gæðamálum og aðgengi að námi fyrir fjölbreyttan hóp fullorðinna nemenda.
Ráðstefnan gaf jafnframt tækifæri til að kynnast nálgun annarra landa, meðal annars í Danmörku, Litháen og Tékklandi. Umræður ráðstefnunnar sýndu að mörg Evrópulönd standa frammi fyrir svipuðum áskorunum þegar kemur að tungumálanámi, inngildingu og þátttöku innflytjenda í samfélaginu. Sérstaklega vakti athygli hversu ólíkar leiðir lönd fara við að skipuleggja tungumálakennslu fyrir fullorðna innflytjendur. Á meðan Danmörk hefur byggt upp samræmdara kerfi með skýrari kröfum og tengingu við opinbera stefnumótun, voru mörg af þeim álitaefnum sem rædd voru í Litháen og Tékklandi sambærileg þeim áskorunum sem Ísland stendur frammi fyrir í dag.
Þátttaka Mímis í ráðstefnunni er liður í áframhaldandi alþjóðlegu samstarfi stofnunarinnar og mikilvægt tækifæri til að miðla íslenskri reynslu, læra af öðrum og styrkja tengsl við samstarfsaðila víða um Evrópu.
„Það var bæði ánægjulegt og lærdómsríkt að fá tækifæri til að kynna starf okkar og eiga samtal við sérfræðinga frá öðrum löndum. Ráðstefnan gaf góða innsýn í hvernig ólík lönd nálgast tungumálanám og inngildingu innflytjenda. Þrátt fyrir mismunandi kerfi og aðstæður stóð upp úr að mörg þeirra álitaefna sem við glímum við á Íslandi eru einnig til umræðu annars staðar í Evrópu,“ segir María Stefanía Stefánsdóttir.
Hér má sjá nokkrar myndir frá ráðstefnunni













