
Свидетельство об окончании курса повышения квалификации № 2 для работников дошкольных учреждений
Glæsilegur hópur útskrifaðist 24.júní sl. úr Курс повышения квалификации № 2 для работников детских садов hjá Mími. Hér fylgja einnig myndir af frábærum verkefnum sem nemendur unnu í myndlist á námskeiðinu en þau bera vitni um mikla sköpunargleði og metnað þeirra.
Á námskeiðinu fengu þátttakendur fjölbreytta og mikilvæga innsýn í starf á leikskólum, meðal annars hvað varðar námsskrá leikskóla, þroska leikskólabarna, íslensku fyrir tvítyngd börn og skapandi listastarf með börnum. Jafnframt var lögð rík áhersla á líkamsbeitingu og vinnuaðstöðu, slysavarnir og heilsueflingu – þætti sem skipta sköpum í daglegu starfi með ungum börnum.
Nemendur lögðu sig fram af alúð og stóðu sig afar vel. Það var sannarlega ánægjulegt að hafa þennan áhugasama og jákvæða hóp í húsinu.
Við óskum öllum útskriftarnemum til hamingju með áfangann og þökkum kærlega fyrir góða samveru.

















