
Certificado de Conclusão do Curso de Desenvolvimento Profissional 2 para Profissionais da Primeira Infância
Glæsilegur hópur útskrifaðist 24.júní sl. úr Curso de Desenvolvimento Profissional 2 para profissionais de creches hjá Mími. Hér fylgja einnig myndir af frábærum verkefnum sem nemendur unnu í myndlist á námskeiðinu en þau bera vitni um mikla sköpunargleði og metnað þeirra.
Á námskeiðinu fengu þátttakendur fjölbreytta og mikilvæga innsýn í starf á leikskólum, meðal annars hvað varðar námsskrá leikskóla, þroska leikskólabarna, íslensku fyrir tvítyngd börn og skapandi listastarf með börnum. Jafnframt var lögð rík áhersla á líkamsbeitingu og vinnuaðstöðu, slysavarnir og heilsueflingu – þætti sem skipta sköpum í daglegu starfi með ungum börnum.
Nemendur lögðu sig fram af alúð og stóðu sig afar vel. Það var sannarlega ánægjulegt að hafa þennan áhugasama og jákvæða hóp í húsinu.
Við óskum öllum útskriftarnemum til hamingju með áfangann og þökkum kærlega fyrir góða samveru.

















