
شهادة إتمام الدورة التدريبية الثانية للتطوير المهني لموظفي مرحلة الطفولة المبكرة
Glæsilegur hópur útskrifaðist 24.júní sl. úr الدورة التدريبية الثانية لتطوير المهارات المهنية لموظفي الحضانة hjá Mími. Hér fylgja einnig myndir af frábærum verkefnum sem nemendur unnu í myndlist á námskeiðinu en þau bera vitni um mikla sköpunargleði og metnað þeirra.
Á námskeiðinu fengu þátttakendur fjölbreytta og mikilvæga innsýn í starf á leikskólum, meðal annars hvað varðar námsskrá leikskóla, þroska leikskólabarna, íslensku fyrir tvítyngd börn og skapandi listastarf með börnum. Jafnframt var lögð rík áhersla á líkamsbeitingu og vinnuaðstöðu, slysavarnir og heilsueflingu – þætti sem skipta sköpum í daglegu starfi með ungum börnum.
Nemendur lögðu sig fram af alúð og stóðu sig afar vel. Það var sannarlega ánægjulegt að hafa þennan áhugasama og jákvæða hóp í húsinu.
Við óskum öllum útskriftarnemum til hamingju með áfangann og þökkum kærlega fyrir góða samveru.

















