Certyfikat ukończenia kursu doskonalenia zawodowego nr 2 dla pracowników placówek opieki nad małymi dziećmi

Glæsilegur hópur útskrifaðist 24.júní sl. úr Kurs doskonalenia zawodowego nr 2 dla pracowników przedszkoli hjá Mími. Hér fylgja einnig myndir af frábærum verkefnum sem nemendur unnu í myndlist á námskeiðinu en þau bera vitni um mikla sköpunargleði og metnað þeirra.

Á námskeiðinu fengu þátttakendur fjölbreytta og mikilvæga innsýn í starf á leikskólum, meðal annars hvað varðar námsskrá leikskóla, þroska leikskólabarna, íslensku fyrir tvítyngd börn og skapandi listastarf með börnum. Jafnframt var lögð rík áhersla á líkamsbeitingu og vinnuaðstöðu, slysavarnir og heilsueflingu – þætti sem skipta sköpum í daglegu starfi með ungum börnum.

Nemendur lögðu sig fram af alúð og stóðu sig afar vel. Það var sannarlega ánægjulegt að hafa þennan áhugasama og jákvæða hóp í húsinu.

Við óskum öllum útskriftarnemum til hamingju með áfangann og þökkum kærlega fyrir góða samveru.

 

Höfðabakki 9

110 Reykjavik

580 1800

[email protected]

nr 701202-3920

 

Godziny otwarcia

Letnie godziny otwarcia: w dni powszednie od 8:00 do 15:30

Leit