Autumn conference for advisers in further education

Ráðgjafar Mímis tóku þátt í Haustfundi ráðgjafa á vettvangi framhaldsfræðslunnar sem haldinn var 26. ágúst á vegum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Á fundinum var sjónum meðal annars beint að innflytjendum og inngildingu, taugafjölbreytileika, markþjálfun, gervigreind og nýjum áherslum í náms- og starfsráðgjöf.

Á fundinum hélt María Stefanía Stefánsdóttir, fagstjóri íslenskudeildar og erlends samstarfs hjá Mími, erindi sem kallaðist „Þróunarverkefni sem miða að inngildingu og auknum tækifærum innflytjenda“.

Í erindinu fjallaði María Stefanía um leiðir til að ná betur til innflytjenda hvað varðar námstækifæri, íslenskufærni og kröfur vinnumarkaðarins, Evrópska tungumálarammann (CEFR), stöðumat í íslensku og mikilvægi þess að skapa raunhæfar leiðir frá íslenskunámi til frekari tækifæra í námi og starfi.

Haustfundurinn er mikilvægur vettvangur fyrir ráðgjafa fræðslu- og símenntunarmiðstöðva til að miðla reynslu sinni, efla faglegt samtal og kynna sér nýjar nálganir og þróun í náms- og starfsráðgjöf.

Höfðabakki 9

110 Reykjavik

580 1800

[email protected]

kt. 701202-3920

 

Opening hours: Weekdays from 8:00 to 16:00

 

Leit