Satisfacción con un curso sobre un nuevo método de enseñanza de las matemáticas

Satisfacción con un curso sobre un nuevo método de enseñanza de las matemáticas

Um 16 manns sóttu fjarnámskeið hjá Mími í gær, fimmtudaginn 14. október, um nýja kennsluaðferð í stærðfræði á framhaldsfræðslustigi. Þátttakendur komu víða að og voru mjög áhugasamir um aðferðarfræðina sem kynnt var á námskeiðinu en meðal þátttakenda voru stærðfræðikennarar í framhaldsfræðslu, starfsmenn símenntunarmiðstöðva og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

Kennsluaðferðin hefur reynst nemendum í framhaldsfræðslunni vel til að komast yfir þann ótta sem þeir hafa gagnvart stærðfræðinni sem oftar en ekki hefur verið þeirra stærsta hindrun á skólagöngunni.

Aðferðarfræðin, sem skýrð er í handbókinni; La lectura de las matemáticas: el empoderamiento personal de los estudiantes de matemáticas sem Mímir, í samstarfi við Hannes Hilmarsson og Fræðslusjóð, gáfu út fyrr á árinu, gengur út á það að nálgast stærðfræðina heildrænt þar sem byggt er á lestrarhæfni og lesskilningi nemenda. Markmið handbókarinnar er fyrst og fremst að greiða veg nemenda í framhaldsfræðslunni gagnvart stærðfræði og veita nemendum sjálfstraust til að takast á helstu hindranir á námsferlinum.

Hönnuður aðferðarfræðinnar, Hannes Hilmarsson sem jafnframt var kennari á námskeiðinu, býr yfir áralangri reynslu af stærðfræðikennslu á framhaldsskólastigi og samtali við bæði nemendur og foreldra þeirra um hindranir í stærðfræðinámi. Hann kennir nú stærðfræði í Menntastoðum hjá Mími. Hannes hefur menntun í faginu, kennarapróf og embættispróf í félagsráðgjöf.

Handbókina má nálgast á mimir.is: https://www.mimir.is/is/mimir/throunarverkefni/ny-og-nyleg-verkefni/ad-lesa-staerdfraedi

 

 

 

Leit