Mímir símenntun hefur tekið þátt í spennandi verkefni á vegum Erasmus +. Verkefnið er samstarfsverkefni milli Finnlands, Frakklands, Þýskalands, Portúgals og Íslands og nefnist WOMEN'S OPPORTUNITIES FOR WORK AND EDUCATION eða WOW-E.

Markhópur verkefnisins eru konur af erlendum uppruna með litla formlega menntun. Verkefnið snýr að þeim áskorunum sem konur af erlendum uppruna mæta í Evrópu og snýst um að gera þeim kleift að láta drauma sína rætast í tengslum við atvinnumöguleika og námstækifæri. Afurðir verkefnisins má sjá hér.

Nánar má lesa um málið í fréttabréfi verkefnisins sem nálgast má hér.