23. október, 2024
Starfsfólk Mímis klæddist bleiku í tilefni af Bleika deginum í dag þann 23. október. Að sjálfsögðu voru bleikar veitingar í boði í takt við daginn.
Á Bleika deginum hvetur Krabbameinsfélagið landsmenn til að vera bleika - fyrir okkur öll. Að bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra finni stuðning okkar og samstöðu.
Starfsfólk Mímis hvetur aðra til að taka þátt í deginum og sýna samstöðu.