Tíu nemendur útskrifuðust fimmtudaginn 16. maí 2024 frá Mími úr námskeiði fyrir samfélagstúlka.

Námið er ætlað þeim sem sinna eða hafa hug á að sinna starfi við samfélagstúlkun. Samfélagstúlkun er munnleg túlkun milli aðila sem ekki tala sama tungumál, án þess að taka afstöðu til viðfangsefnisins.

Nemendur læra um íslenskt samfélag og helstu stofnanir þess. Einnig fá nemendur þjálfun í glósutækni og túlkun á námskeiðinu.

Við óskum þeim innilega til hamingju.