Um námskeiðið

Námið er ætlað einstaklingum sem eru eldri en 20 ára, hafa stutta skólagöngu og vinna við uppeldi og umönnun barna á leikskólum. Það er mælt með að nemendur ljúki Fagnámskeiði 1 áður en þeir skrá sig í Fagnámskeið 2. Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði og kennt samkvæmt námskrá vottaðari af Menntamálastofnun. Fagnámskeiðin eru haldin í samstarfi Mímis-símenntunar og Eflingar.

Námskeiðið er kennt á íslensku. Til þess að geta tekið þátt í námskeiðinu er mælst er til þess að þátttakendur séu a.m.k. á stigi A2-B1 skv. evrópska tungumálarammanum.

Sjá hér: https://www.rannis.is/media/islenskukennsla/Evropski-tungumalaramminn.pdf

Uppbygging náms

Kennsla fer fram á miðvikudögum, kl. 17:00-20:00 og laugardögum, kl. 9:30-15:30.

Námsgreinar

  • Færnimappa
  • Heilsuefling
  • Heimsókn í leikskóla
  • Innra starf í leikskóla
  • Íslenska fyrir tvítyngd börn
  • Líkamsbeiting og vinnuaðstaða
  • Listastarf með börnum
  • Námskrá leikskóla
  • Þroski og þróun leikskólabarna
  • Slysavarnir

 

Inntökuskilyrði

Námið er ætlað þeim sem vinna á leikskólum, eru eldri en 20 ára og hafa ekki lokið formlegu framhaldsskólanámi. Heimilt er þó í undantekningartilfellum að taka inn í námið starfsmenn sem eru á aldrinum 18-20 ára ef þeir eru í fullu starfi. Það er mælt með að nemendur ljúki Fagnámskeiði 1 áður en þeir skrá sig í Fagnámskeið 2.

 

 

 

 

 

Námsmat

Námsmat byggir á mætingu og virkni í tímum. Nauðsynlegt er að ná 80% mætingu til að teljast hafa lokið námsbrautinni.

Kennslustaður

Fjarnám og Höfðabakki 9, 110 Reykjavík

Styrkir/niðurgreiðslur

Stéttarfélög hafa greitt fyrir sína félagsmenn að hluta eða öllu leyti. Vinsamlega leitið upplýsinga hjá ykkar stéttarfélagi.

Stundatafla/kennslufyrirkomulag

 

Verð

Almennt verð er 32.000 kr.

Stéttarfélög hafa greitt fyrir sína félagsmenn að hluta eða öllu leyti. Vinsamlega leitið upplýsinga hjá ykkar stéttarfélagi.

Verð á námsleiðum er birt með fyrirvara um breytingar

Spurt og svarað

Eru próf? Nei það eru ekki próf en það er 80 % mætingarskylda.

Hvenær hefst námið? Fagnámskeið II fer af stað svo lengi sem skráning er nægjanleg.

Hvaða möguleika gefur þetta námskeið? Nemendur sem klára fagnámskeið I og II geta sótt um Leikskólaliðabrú til að öðlast starfsheitið Leikskólaliði.

 

Flokkar: Námsbrautir