SKRÁNINGU Í HAUSTPRÓF 2024 ER LOKIÐ

Próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt eru haldin tvisvar á ári, að vori og hausti (Icelandic tests for applicants for Icelandic citizenship (Icelandic passport)). Mímir sér um framkvæmd ríkisborgaraprófa fyrir Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.     

Unnið er eftir þeim reglum sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

setur um skráningu og greiðslur.

NÆSTU PRÓF VERÐA AÐ VORI 2025

 

Athugið! Takmarkaður fjöldi kemst að í hverri prófalotu.

Ekki er hægt að skrá sig í próf eftir að skráningarfresti lýkur. 

Prófið er á stig A.2 skv Evrópska tungumálarammanum, sjá hér: Sjá hér

Endurgreiðsla er ekki möguleg eftir skráningu.

 

Almennar upplýsingar -smellið hér

 

Upplýsingar um prófið og sýnispróf - smellið hér

 

Næstu próf

Næstu próf verða haldin að vori 2025

Verð og greiðslufyrirkomulag

Prófið kostar 40.000 kr.

Skráning í próf er ekki gild nema það sé búið að borga.

Endurgreiðsla er ekki möguleg eftir skráningu.

Greiðslureglur Mímis gilda ekki um ríkisborgarapróf.

Niðurstöður

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu fer yfir prófin og sendir niðurstöður til próftaka.

Niðurstöður úr prófunum berast próftökum með tölvupósti sex til átta vikum eftir síðasta prófdag.

Tölvupóstur er sendur á það netfang sem skráð er í umsókn.

 

Fyrirspurnir um undanþágur

Öllum fyrirspurnum um undanþágur er svarað hjá Útlendingastofnun.

Applying for Icelandic citizenship? Further information at www.utl.is

Flokkar: Ríkisborgarapróf