Vaxandi aðsókn í raunfærnimat hjá Mími fyrir starfsfólk leik-, grunnskóla og þau sem starfa við umönnun

Raunfærnimat hjá Mími fyrir leikskólaliða-, stuðningsfulltrúa- og félagsliðabrautir hefur farið vel af stað þetta vormisserið.  Það sem af er önninni hafa tíu manns lokið raunfærnimati auk þess sem 8 eru að hefja ferlið.

Hugtakið raunfærni sprettur af þeirri hugmynd að nám fari fram víðar en innan formlegs skólakerfis og eigi sér stað í margvíslegum aðstæðum. Raunfærnimat er viðurkenning á þekkingu, færni og reynslu sem einstaklingur hefur aflað sér með ýmsum hætti t.d. með starfsreynslu, frístundanámi, félagsstörfum og fjölskyldulífi.

Raunfærnimat getur því skipt sköpum fyrir fólk sem hefur aflað sér mikillar starfsreynslu án formlegrar menntunar. Þetta á til dæmis við um starfsfólk leik- og  grunnskóla eða fólk sem hefur starfað við umönnun um árabil og er að velta fyrir sér áframhaldandi námi. Með raunfærnimati er tekið mið af þeirri reynslu og þekkingu sem viðkomandi hefur aflað sér og er hægt að meta hana til eininga á framhaldsskólastigi. Þetta getur stytt námstíma verulega og auðveldað fólki að hefja eða ljúka námi.

Raunfærnimat hjá Mími er ætlað einstaklingum 23 ára og eldri sem hafa að minnsta kosti þriggja ára starfsreynslu á því sviði sem lagt er mat á. Þeir sem eru óvissir um hvort raunfærnimat eigi við í þeirra tilviki geta byrjað á því að fylla út skimunarlista á heimasíðu Mímis fyrir leikskólaliða-, stuðningsfulltrúa-  eða félagsliðabrautir . Raunfærnimatið er þátttakendum að kostnaðarlausu hafi þeir ekki lokið námi á framhaldsskólastigi, í samræmi við skilyrði framhaldsfræðslunnar.

Þátttakendur í raunfærnimati lýsa jákvæðri reynslu af því og telja ferlið hafa eflt sjálfstraust og gert færni þeirra sýnilegri. Í mörgum tilvikum hefur raunfærnimatið orðið hvati að því að hefja nám að nýju, þar sem niðurstöðurnar hafa nýst til styttingar á námi og jafnframt styrkt stöðu þeirra á vinnumarkaði.

Svona er raunfærnimatsferlið

  • Umsókn og gögnum skilað
  • Náms- og starfsráðgjafi hefur samband við umsækjanda
  • Umsækjandi metur þekkingu sína með sjálfsmatslistum
  • Matssamtal hjá fagaðila og niðurstöður skráðar
  • Náms- og starfsráðgjöf varðandi niðurstöður og næstu skref

Nánari upplýsingar og skráning eru í boði hjá náms- og starfsráðgjöfum Mímis sem leiða þátttakendur í gegnum ferlið og veita ráðgjöf um áframhaldandi nám og tækifæri

 

 

 

Leit